Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ćtti ég ađ fá mér Tatto af stjörnumerkinu (Hrútur) mínu undir úlnliđinn ?

Textareitur

Hljómsveit Vikunar Er Maus!! :D

Leit

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Undanfariđ

03. október 2006 klukkan 05:45
Jæja undan farnir dagar :)

Á föstudaginn var enginn skóli hjá mér þannig að ég gat sofið smá :), svo kom Pabbi heim og vakti mig og sagði mér frá einhverjum gaur sem vantaði alveg rosalega að losa sig við 500 Lítra fiskabúr ( Hélt fyrst 600L en ég hef eitthvað misreiknað mig ) með fullt af auka dóti :) og var það nú alveg gott tilefni til að vakna þar sem ég er búinn að vera leita mér af nýu heimili sem getur hýst Óskar og Önnu :D

Ég skellti mér bara upp í Dýrabúð og hringdi í dúddan og spurði um umálin á búrinu sem hljóma svona 145*55*66, hann var sem sagt með þetta búr og með helling af auka búnaði með :D, Ég spurði hann þá um heimilisfang og skellti mér svo í jeppan og heim til gaursins, svo þegar ég kom þangað þá var hann með þetta risa búr og var ekki bara drauma dælan þarna líka Rena Filstar Xp3 :D sem er því líkt kvikindi, svo var líka fullt af fiskum þarna sem ég fékk líka

Gaurinn var ekki alveg að treista bakinu í að bera þetta flikki með mér þannig að ég hringdi í liðsauka :D og voru Helgi og Grétar svo yndislegir að koma og hjálpa mér með þetta flikki :D,

Takk fyrir hjálpina strákar :*

fórum bara með það heim til mín og fiskarnir upp í búð, svo fór ég bara á staff djamm hjá Glitnir þar sem boðið var upp á mat og endalaust af bjór sem kláraðist ekki vegna magns :D, ég varð bara frekar hress eftir þetta og fórum við svo á Red Chilli í smástund, svo komu Grétar og Helgi og sóttu mig

Við fórum þá heim til mín til að drekka og þangað komu svo Gaui, Jónas og Jói, svo fórum við niður í bæinn að skemmta okkur, Jói kallinn komst því miður ekki inn á Sólon :( en hann fór bara að hitta einhverja vini sína, svo þegar ég var kominn á Sólon fór ég á barinn nokkru sinnum og svo man ég ekki meira :)

Laugardagur

Ég vaknaði bara heima og var svo ógeðslega þunnur að það var bara leiðinlegt :D, Fór svo upp í búð að hjálpa M&P með það að koma fyrir stóru fóður sendingunni, svo seinna um kvöldið var ég baara alveg að leka niður úr þynku og var byrjaður að dotta í stólnum fyrir framan fiskabúrið :), Svakalega róandi að horfa á þetta búr :D
Þá fór Helgi að tala við mig á Msn og sagði mér að drulla mér yfir til hanns :P, þá fór ég bara í sturtu og party gallan og svo kom Jói sæti að sækja Mig og Gaua, við fórum svo yfir til Helga og þar pantaði Ég og Gummi pizzu saman :D vá hvað það var gott að borða svona "Rusl" fæði :D, bjórinn vildi samt ekki fara eins auðveldlega niður, kláraði 3 en svo fékk ég bara þroskaheftan hausverk ofan á þynkuna þannig að ég ákvað bara að fara heim þegar þeir myndu fara í bæinn :P

Steini var svo góður að skutla mér heim, Takk fyrir það Steini :* og fór ég bara eitthvað að stússast í því að þrífa Nýu dæluna og dunda mér eitthvað á netinu :P

Sunnudagur

Fór í Fótbolta með Helga, Grétari, Jónasi, Steina, Gumma og Marra, við fengum að vera inni í Rimaskóla þar sem Jónas vinnur þar og er með Master ;), svo eftir boltan fórum við í bío á Will farell myndina :D sem var svakalega fyndin :D

Fór svo heim að fikta aðeins í nýa fiskabúrinu og svo að sofa :)


Svo í dag fór maður bara í skólan, vaknaði smá seint en ég mætti þó í alla tímana :), fór síðan heim eftir skóla til að þrífa nýa búrið, spila smá á gítarinn og borða :), fór svo í Sögu tíma
Eftir var bara farið heim og pælt aðeins í því hvernig ég ætti að koma nýa búrinu fyrir í íbúðina og fór að taka smá til, svo seinna um kvöldið Komu Grétar og Gaui til að hjálpa mér með Búrið upp í bílskúr þar sem Ég þarf að laga það smá til og gera það flott áður en það fer inn til mín :)

Takk kærlega fyrir hjálpina strákar :*

Segjum þetta gott í bili er bara farinn að rónast eitthvað :)
Jökull Finnbogason
Já, þetta búr er enginn smá hlunkur. En allavega, takk fyrir helgina kall! :*
03. október 2006 klukkan 19:23
Takk fyrir helgina kútur, en leiðinlegt að þú hafir ekki komist með í bæinn. Allavega var þetta snilldar helgi og ég vil þakka öllum fyrir félagskapinn :)
04. október 2006 klukkan 00:07

Skrifa athugasemd