Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ætti ég að fá mér Tatto af stjörnumerkinu (Hrútur) mínu undir úlnliðinn ?

Textareitur

Hljómsveit Vikunar Er Maus!! :D

Leit

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

"Vá ég vissi að þetta yrði góður dagur er VÁ!!!!"

03. desember 2006 klukkan 03:52
Jæhja :)

Þessi dagur er alveg magnaður verð ég bara að segja hann byrjaði með því að ég vaknaði og skutlaði mömmu upp í vinnuna og þegar ég var kominn upp í eldhús og við vorum að fara út sagði mamma mér að Ég Jökull finnbogason hafi komist INN Í FRIGGIN FB :D!!! kallinn er á leiðinni að verða rafvirki!!! :D sem er snilld þar sem allir segja að ég sé fæddur rafvirki þar sem ég hef verið að taka hluti í sundur og laga þá síðan ég var lítið barn og alltaf hjálpað til við að draga rafnagn í þegar til þess þarf og hef góða reynslu í því :) ég er hand viss um að mér mun ganga frábærlega í þessu þar sem ég hef svo mikill áhuga á rafmagni :)
Svo fyrir tólf fór ég að skila inn verkefna möppum fyrir Félagsfræði og heimspeki woohoo :D

Síðan fór ég heim í smá stund og dottaði ég aðeins :P, vaknaði svo bara og skellti mér á Nings að borða :D eftir það fór ég upp í vassvirkjan til að heilsa upp á Gummon dúlluna mína ;D en hann var hvergi að finna og fékk ég að vita seinna um daginn að hann hefði skroppið frá í smá stund til að fara að versla sér skó :) þannig að ég fór í smáran og fór bara að skoða í búðir, Ég endaði með því að kaupa mér géggjað töff bol og renda hettupeisu í Blend :D

Svó fór ég bara heim og Hlammaði mér í rúmið og horfði á tonn af Prison Break Season2 :D, eftir matinn var ég bara að msn-ast og var það nú algjör snilld!! of gaman að vera upplýsinga safnari eins og ég :D

Svo fór ég bara að gera mig til fyrir djammið og fór svo og sótti Kristínu og fórum við eitthvað að rúnnta svo eftir smá stund var ákveðið að kíkja á Gaua dúlluna á kringlu kránni þar sem hann vinnur, við redduðum okkur frítt inn, Smooth Kristín ;D hehe og spjölluðum við aðeins við hann svo fórum við bara í bæinn að skemmta okkur, fórum á kverfis og hittum Kára kall Kristínar og vini hans, Ætluðum svo í hraðbanka en Kristín gleimdi kortinu þannig að við fórum bara og sóttum það og milli stikki fyrir síman minn þar sem hann var batterís laus :/ svo fórum við á sólon, ég var spurður um Personu skilríki en Kristín labbaði bara inn :) ohh þessar stelpur ;D ég hitti Gumma, Andra og Rikka G á sólon, ég og Gummi fórum niður og fengum okkur sæto og fórum bara að spjalla saman svo seinna um kvöldið settumst við hjá tvem snilldar gaurum úr Hamrahverfinu og voru þeir að fíla að ég væri búsettur þar líka :D vorum þarna niðri bara að spjalla og skemmta okkur, spjallaði slatta við Gústa sem er úr hamrahverfinu, snilldar gaur þar á ferð :D

Svo varð klukkan orðin 4 og þá var farið að skella sér heim á leið, Ég og Kristín hittum Kára og Danna hjá hlölla vagninum og þaðan sáum við að eitthvað var að ské hjá stræto miðstöðinni

Það var sem sagt einhver strákur sem var sleginn í götuna af einhverjum pólverja þannig að hausinn á honum skall í jörðina og hann rotaðist og byrjaði að blæða úr eyrunum á honum, leynilöggan var ekki lengi á staðinn og sjúkrabíll, svo kom rútan þar sem Toby kallinn sýndi sig og damn hvað þessi gaur er svalur! Friggin töffari :)

Svo fórum við bara heim að sofa

Svona í meginn málum:)

Ég er kominn inn í FB
Ég fékk of djúsí Infó
Djammaði og skemmti mér ógeðslega vel
Brosti allan daginn

Call Vote: besti normal dagur ever! :D
-Vote Passed! ;)

Ble ;*
Jökull Finnbogason
Palli
 
Vá....ekki vera svona hamingjusamur, það er smitandi
03. desember 2006 klukkan 04:02
HAha.....þú varst líka brosandi allan tíman þegar þú varst á Sólon...ekkert smá hamingjusamur gaur. En takk fyrir kvöldið kallinn minn, áttum gott spjall :P
04. desember 2006 klukkan 04:49
Til hamingju með það að vera kominn inn í FB! Ég vissi að þú kæmist inn! ;) Ég fæ þig svo til að tengja rafmagnið í húsinu mínu og Ellu. :D

Þú gleymdir að taka fram í meginmáli þarna neðst að þú hafir keypt þér ný föt. :)

Hvaða djúsí info fékkstu annars? Segðu mér á MSN. Forvitni.is :D

Já, takk fyrir að kíkja á mig í vinnuna maður. ;) Var kallinn ekki flottur á barnum? :D Kannski maður færi sig bara yfir á barinn á Sólon með Gumma. :D
04. desember 2006 klukkan 07:14
Grétar
 
Það er fyndið að vera kátur :D
06. desember 2006 klukkan 21:27
Oddur
 
Til hamingju með inngöngu í skólann.

Ef þú ert ekki snillingur í að tengja og setja saman svona stöff þá veit ég ekki hver er það. Ég held að þú sért loksins kominn á rétta braut og þar sem þú átt eftir að blómstra. Vonandi áttu bara eftir að taka þessa samnemendur í ******** og sýna þeim hvar Jölli keypti hveitið og gerið. :)
30. janúar 2007 klukkan 15:52
Takk fyrir það :), já þetta er bara perfect fyrir mig :)
05. febrúar 2007 klukkan 18:41

Skrifa athugasemd