Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ćtti ég ađ fá mér Tatto af stjörnumerkinu (Hrútur) mínu undir úlnliđinn ?

Textareitur

Hljómsveit Vikunar Er Maus!! :D

Leit

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Sandur :)

05. febrúar 2007 klukkan 00:22

Jæja þá er kominn sandur í stóra búrið og tók það sinn tíma að þrífa allan þennan sand, man nú ekki laveg hvað ég setti mörg Kg af sandi í það en það er eitthvað í kringum 30.kg :), núna er allt svifrykið farið úr búrinu og allt tært og fallegt :), ég er kominn með smá hugmynd um hvernig ég mun hafa búrið að innan og fer ég í það um leið og þessi snjór pillar sér burt :)

En hérna er mynd af búrinu eins og það er núna


Síðan þar sem að 170L búrið var ekki lengur notað undir bökurnar þá ákvað ég nú bara að setja upp svona ekta fiskabúr svipað og hitt 54L :)
ég tók allt úr búrinu, allafiskana, vatnið og sandinn setti ég síðan yfir í stóra búrið

Síðan setti ég 20.Kg af gégjuðum svörtum sandi/möl sem er með hrafntinnu í þannig að það glitrar smá í sandinn, mjög töff :) setti líka 3 rætur í búrið

Hér er mynd af búrinu eins og það var (Ekta böku búr hehe Hlæjandi)



og svona er það núna :)

Hitarinn reyndar laus á þessari mynd, á eftir að festa hann :P og þurka vatnið sem komst á milli búrsins og bakrunnsinns :)
Jökull Finnbogason
4 athugasemdir

Project PVC Tilbúiđ :D

29. janúar 2007 klukkan 02:37
Jæja þá er maður búinn að sitja sveittur og að grilla heilan á sér með Pvc lími og asintoni hálfa helgina við það að setja saman hreinsikerfið fyrir nýa búrið :)

Hérna eru hlutirnir rétt áður en ég fór að byrja á því að líka saman

Hérna er ég búinn að setja upp festingar inn í skápinn og búinn að koma Pvc dótinu fyrir í vinstriskápnum

Svo er ég bara með þessa einu dælu tengda við þetta kerfi eins og er en ég mun bæta tvem öðrum dælum við þegar búrið fer í notkun :)

Hérna er vass intakið fyrir dælurnar og svo setti ég einn auka ventil þarna svo ég get nýtt mér þetta til þess að tæma vatn úr búrinu á auðveldan hátt :D


Hérna er inntakið ofan í búrinu

og hérna kemur vatnið út úr dælunum, á eftir að setja spraybar á þetta til að sjá hvernig það kemur út :P




So what do you think of it ? :)
Jökull Finnbogason
5 athugasemdir

The Project Begins

27. janúar 2007 klukkan 00:18
Jæja haldiði að kallin ætli ekki bara að blogga smá :P

En já eins og flestir félagarnir vita að þá er kallinn aftur kominn með ~600 Lítra búr í hendurnar og þetta verður sko EKKI SELT!!! Hlæjandi en já þetta búr er1,6 Meter að lengt, 60 Cm á breidd og 60 Cm á hæð, það er 10mm gler í því og 5mm acryl plata límd undir botnimm á því til þess að varna þess að það komi sprunga í botninn á því, svo er heilsoðinn álrammi utanum það og er mjög góður frágangur á honum :D, með búrinu fékk ég 1000L/h tunnudælu og tonn af aukahlutum og dóti, það er líka mjög massífur skápur undir búrið sem er gerður úr stálprófílum og viðar hurðum sem passa vel við sófan :D

En búrið fer ekki strax í notkun þar sem ég á eftir að gera helling við það, t.d. að sérsníða í það hreinsikerfi úr PVC sem Gummi var svo yndislegur að selja mér í dag :* og er ég burjaður að setja það saman en segi þetta gott í bili og hér koma nokrar myndir :)






Svo ein hérna af 54 Lítrabúrinu mínu svona til gamans, var að gera það upp :D


Kem síðan með fleirri myndir af stóra búrinu og update á stöðunni og uppbyggingu hreinsikerfisins :D
Jökull Finnbogason
4 athugasemdir

"Vá ég vissi ađ ţetta yrđi góđur dagur er VÁ!!!!"

03. desember 2006 klukkan 03:52
Jæhja :)

Þessi dagur er alveg magnaður verð ég bara að segja hann byrjaði með því að ég vaknaði og skutlaði mömmu upp í vinnuna og þegar ég var kominn upp í eldhús og við vorum að fara út sagði mamma mér að Ég Jökull finnbogason hafi komist INN Í FRIGGIN FB :D!!! kallinn er á leiðinni að verða rafvirki!!! :D sem er snilld þar sem allir segja að ég sé fæddur rafvirki þar sem ég hef verið að taka hluti í sundur og laga þá síðan ég var lítið barn og alltaf hjálpað til við að draga rafnagn í þegar til þess þarf og hef góða reynslu í því :) ég er hand viss um að mér mun ganga frábærlega í þessu þar sem ég hef svo mikill áhuga á rafmagni :)
Svo fyrir tólf fór ég að skila inn verkefna möppum fyrir Félagsfræði og heimspeki woohoo :D

Síðan fór ég heim í smá stund og dottaði ég aðeins :P, vaknaði svo bara og skellti mér á Nings að borða :D eftir það fór ég upp í vassvirkjan til að heilsa upp á Gummon dúlluna mína ;D en hann var hvergi að finna og fékk ég að vita seinna um daginn að hann hefði skroppið frá í smá stund til að fara að versla sér skó :) þannig að ég fór í smáran og fór bara að skoða í búðir, Ég endaði með því að kaupa mér géggjað töff bol og renda hettupeisu í Blend :D

Svó fór ég bara heim og Hlammaði mér í rúmið og horfði á tonn af Prison Break Season2 :D, eftir matinn var ég bara að msn-ast og var það nú algjör snilld!! of gaman að vera upplýsinga safnari eins og ég :D

Svo fór ég bara að gera mig til fyrir djammið og fór svo og sótti Kristínu og fórum við eitthvað að rúnnta svo eftir smá stund var ákveðið að kíkja á Gaua dúlluna á kringlu kránni þar sem hann vinnur, við redduðum okkur frítt inn, Smooth Kristín ;D hehe og spjölluðum við aðeins við hann svo fórum við bara í bæinn að skemmta okkur, fórum á kverfis og hittum Kára kall Kristínar og vini hans, Ætluðum svo í hraðbanka en Kristín gleimdi kortinu þannig að við fórum bara og sóttum það og milli stikki fyrir síman minn þar sem hann var batterís laus :/ svo fórum við á sólon, ég var spurður um Personu skilríki en Kristín labbaði bara inn :) ohh þessar stelpur ;D ég hitti Gumma, Andra og Rikka G á sólon, ég og Gummi fórum niður og fengum okkur sæto og fórum bara að spjalla saman svo seinna um kvöldið settumst við hjá tvem snilldar gaurum úr Hamrahverfinu og voru þeir að fíla að ég væri búsettur þar líka :D vorum þarna niðri bara að spjalla og skemmta okkur, spjallaði slatta við Gústa sem er úr hamrahverfinu, snilldar gaur þar á ferð :D

Svo varð klukkan orðin 4 og þá var farið að skella sér heim á leið, Ég og Kristín hittum Kára og Danna hjá hlölla vagninum og þaðan sáum við að eitthvað var að ské hjá stræto miðstöðinni

Það var sem sagt einhver strákur sem var sleginn í götuna af einhverjum pólverja þannig að hausinn á honum skall í jörðina og hann rotaðist og byrjaði að blæða úr eyrunum á honum, leynilöggan var ekki lengi á staðinn og sjúkrabíll, svo kom rútan þar sem Toby kallinn sýndi sig og damn hvað þessi gaur er svalur! Friggin töffari :)

Svo fórum við bara heim að sofa

Svona í meginn málum:)

Ég er kominn inn í FB
Ég fékk of djúsí Infó
Djammaði og skemmti mér ógeðslega vel
Brosti allan daginn

Call Vote: besti normal dagur ever! :D
-Vote Passed! ;)

Ble ;*
Jökull Finnbogason
6 athugasemdir

"Mér Finnst ţađ bara víst geđveikt!"

29. nóvember 2006 klukkan 03:07
Jæja :)

Seinasta helgi var bara mjög fín, var bara rólegur heima á föstudaginn svo á laugardaginn bauð ég fólki heim en svona rétt áður en allt fólkið fór að koma fékk ég snilldar símtal frá Mr.Harður haha :D þeir fatta þetta sem voru í teitinu, fyndið grín :) en svo komu Kata, Böddi, Ásta, Sandra , Grétar, Kelli og Hildur, Herdís, Karen, Sigga og Gaui, Svo komu Gummi, Helgi og Andri en Gummi var að fara að vinna á Sólon þannig hann stoppaði stutt :(
Seinna um kvöldið kom Kristín og einhverjir vinir hennar en þau stoppuðu líka stutt, þetta var bara mjög fínnt teiti,

svo var Magicinn góði búinn þannig að ég prufaði bara að blanda vodka í mjólk eins og Helgi og Gummi segja að sé fínnt og þetta kom bara mjög á óvart :D svo seinna um kvöldið fórum við aðeins í bæinn, hittum Gumma á Barnum og lét Gummi mig fá Aygo, takk Gummi fyrir þennan snilldar drykk :*

Svo fór Ég, Helgi og Herdís heim

Ég var alveg frekar wasted þetta kvöld en þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld :D

Takk fyrir mig allir :*
Jökull Finnbogason
5 athugasemdir

You Smelly Bastard

19. nóvember 2006 klukkan 07:05
Jæja í dag vaknaði ég frekar spakur og skellti mér í vinnuna, ég byrjaði á því að skipta um vatn hjá Koi fiskunum, svo fatta ég að það ætti eftir að þrífa allar dælurnar fyrir sóttkvínna þar sem það fara að koma fiskar í lok næstu viku eða eitthvað þannig, þannig að ég fór og náði í allar dælurnar og "You smelly bastard", var búinn að fresta því of lengi að þrífa þessar dælur ( FYI, dælurnar voru ekki í notkun í búrum þar sem fiskar eru í heldur bara í geimslu í vatni ) en já ég dreif mig bara í því að þrífa þennan KÚK :D, svo kom gaur inn í búðina sem var frekar ferskur og var að fara fá sér fiska í búrið sitt og fræddi ég kallinn aðeins um hvernig væri best að byrja þetta allt saman :)

Svo eftir vinnuna fór ég með Mömmu að skoða úlpur þar sem hún ætlaði að gefa mér úlpu :D
svo fundum við þessa frábæru úlpu í J&J og vá hvað ég er ánægður með þessa úlpu, Takk Mamma :*

Svo eftir kvöldmatinn fór kallinn bara út í bílskúr með Pabba að hjálpa honum við það að taka til ;)

Núna er maður bara að fara sötra bjór og slappa af með strákunum :D, That's life worth loving :D

Allavegana bæ :)
Jökull Finnbogason
4 athugasemdir

It's all in the hibbs

19. október 2006 klukkan 05:33
Jæja kominn tími á smá blog ? ;)

Í dag fór kappinn bara í skólan í sögutíma og eftir það bara eitthvað heim að hangsa :P

Ég ætlaði mér að fara í vinnuna í kvöld en ég bara gleimdi mér alveg í That 70's show Skömmustulegur, svo rétt fyrir kvöldmatinn skellti ég Nýu dælunni í fiskabúrið :), þetta er Rena Filstar Xp3 dæla sem dælir 1350L/h

Xp3 vinstrameginn og Aquael hægrameginn
Rena Filstar Xp3
Aint she a beauty ? ;D

Gamla dælan mín dælir 650L/h, þannig að það gerir samtals 2000L/h :D í 170lítra búri þannig að á einum tíma fer vatnið ~12x í hreinsun :D sem er virkilega gott


Fór svo að lyfta aðeins og yndislega góða og kalda sturtu :D, Mmm köld sturta er of góð eftir að hreifa sig :D

En núna ætla ég bara að fara að finna mér eitthvað gúmmelaði til að gúffa í mig :D
Jökull Finnbogason
5 athugasemdir

Undanfariđ

03. október 2006 klukkan 05:45
Jæja undan farnir dagar :)

Á föstudaginn var enginn skóli hjá mér þannig að ég gat sofið smá :), svo kom Pabbi heim og vakti mig og sagði mér frá einhverjum gaur sem vantaði alveg rosalega að losa sig við 500 Lítra fiskabúr ( Hélt fyrst 600L en ég hef eitthvað misreiknað mig ) með fullt af auka dóti :) og var það nú alveg gott tilefni til að vakna þar sem ég er búinn að vera leita mér af nýu heimili sem getur hýst Óskar og Önnu :D

Ég skellti mér bara upp í Dýrabúð og hringdi í dúddan og spurði um umálin á búrinu sem hljóma svona 145*55*66, hann var sem sagt með þetta búr og með helling af auka búnaði með :D, Ég spurði hann þá um heimilisfang og skellti mér svo í jeppan og heim til gaursins, svo þegar ég kom þangað þá var hann með þetta risa búr og var ekki bara drauma dælan þarna líka Rena Filstar Xp3 :D sem er því líkt kvikindi, svo var líka fullt af fiskum þarna sem ég fékk líka

Gaurinn var ekki alveg að treista bakinu í að bera þetta flikki með mér þannig að ég hringdi í liðsauka :D og voru Helgi og Grétar svo yndislegir að koma og hjálpa mér með þetta flikki :D,

Takk fyrir hjálpina strákar :*

fórum bara með það heim til mín og fiskarnir upp í búð, svo fór ég bara á staff djamm hjá Glitnir þar sem boðið var upp á mat og endalaust af bjór sem kláraðist ekki vegna magns :D, ég varð bara frekar hress eftir þetta og fórum við svo á Red Chilli í smástund, svo komu Grétar og Helgi og sóttu mig

Við fórum þá heim til mín til að drekka og þangað komu svo Gaui, Jónas og Jói, svo fórum við niður í bæinn að skemmta okkur, Jói kallinn komst því miður ekki inn á Sólon :( en hann fór bara að hitta einhverja vini sína, svo þegar ég var kominn á Sólon fór ég á barinn nokkru sinnum og svo man ég ekki meira :)

Laugardagur

Ég vaknaði bara heima og var svo ógeðslega þunnur að það var bara leiðinlegt :D, Fór svo upp í búð að hjálpa M&P með það að koma fyrir stóru fóður sendingunni, svo seinna um kvöldið var ég baara alveg að leka niður úr þynku og var byrjaður að dotta í stólnum fyrir framan fiskabúrið :), Svakalega róandi að horfa á þetta búr :D
Þá fór Helgi að tala við mig á Msn og sagði mér að drulla mér yfir til hanns :P, þá fór ég bara í sturtu og party gallan og svo kom Jói sæti að sækja Mig og Gaua, við fórum svo yfir til Helga og þar pantaði Ég og Gummi pizzu saman :D vá hvað það var gott að borða svona "Rusl" fæði :D, bjórinn vildi samt ekki fara eins auðveldlega niður, kláraði 3 en svo fékk ég bara þroskaheftan hausverk ofan á þynkuna þannig að ég ákvað bara að fara heim þegar þeir myndu fara í bæinn :P

Steini var svo góður að skutla mér heim, Takk fyrir það Steini :* og fór ég bara eitthvað að stússast í því að þrífa Nýu dæluna og dunda mér eitthvað á netinu :P

Sunnudagur

Fór í Fótbolta með Helga, Grétari, Jónasi, Steina, Gumma og Marra, við fengum að vera inni í Rimaskóla þar sem Jónas vinnur þar og er með Master ;), svo eftir boltan fórum við í bío á Will farell myndina :D sem var svakalega fyndin :D

Fór svo heim að fikta aðeins í nýa fiskabúrinu og svo að sofa :)


Svo í dag fór maður bara í skólan, vaknaði smá seint en ég mætti þó í alla tímana :), fór síðan heim eftir skóla til að þrífa nýa búrið, spila smá á gítarinn og borða :), fór svo í Sögu tíma
Eftir var bara farið heim og pælt aðeins í því hvernig ég ætti að koma nýa búrinu fyrir í íbúðina og fór að taka smá til, svo seinna um kvöldið Komu Grétar og Gaui til að hjálpa mér með Búrið upp í bílskúr þar sem Ég þarf að laga það smá til og gera það flott áður en það fer inn til mín :)

Takk kærlega fyrir hjálpina strákar :*

Segjum þetta gott í bili er bara farinn að rónast eitthvað :)
Jökull Finnbogason
2 athugasemdir

Ţroskaheft Brúđkaup ;D

29. september 2006 klukkan 10:18
Jæja í dag vaknaði kallin aðeins of seint en það gerði ekki til, mætti í Heimspeki til að fara í próf, það gékk bara sæmilega held ég :D svo fór ég bara aðeins heim að gera eitthvað sem ég man enganveginn :P (P.s. mað það núna ég fór í Worldclass með Helga, við tókum sæmilega á þar og verðum við að endurtaka það aftur svona til að koma sér í smá form :D ), fór svo í sögutíma og eftir það fór ég bara heim að fá mér að borða

Fór svo um 5 leitið upp í Dýrabúð að hjálpa M&P, það var að koma sending af fóðri, fullur gámur að dóti :D var þar til sirka 12 um kvöldið að umstafla fóðri og allskonar dýra dóti, þar að meðal einu tonni af kattasandi, það tók svolítið á :D þannig að ég fékk bara frekar góða hreifingu í dag :D

Svo fór ég að hitta strákana á Sólon þar sem við hlustuðum á Ingó og einhvern félaga hans spila og syngja :D, Helgi, Gaui og Gummi voru að sturta í sig bjór, ég hefði gert það líka hefði ég ekki verið á bíl (Enginn skóli á Föstudaginn hjá mér ;D ) og Grétar hefði öruglega gerð það líka ef hann hefði ekki verið í sömu stöðu og ég :P

svo þegar það var lokað sólon fórum við á Essó planið og fórum við eitthvað að fíflast með því að hækka vel í græunum og dansa eins og fávitar :D samt aðalega Gaui og Helgi sem voru að dansa, svo komu einhverjar stelpur að dansa við þá sem var frekar fyndið en það endaði með einhverjum biturleika og stelpan sem var að keira keirði á kant :D, Fyndið grín!! :D Svo fórum við bara heim eftir smá flipp þarna :P

En já ég vill bara þakka strákunum fyrir þetta frábæra kvöld :*
Jökull Finnbogason
4 athugasemdir

Auđvitađ ţurfti hann ađ sparka!

13. september 2006 klukkan 08:59
Föstudagurinn 8.Sept '06

Jæja þá er víst komið að því að maður skrifi um þennan frábæra dag :D, er bara ekki búinn að hafa tíma í svona bloggerí ;) en já dagurinn var bara venjulegur föstudagur en kvöldið var nú ekkert venjulegt föstudags kvöld :D

Kallinn var búinn að plana ágætis party fyrir kvöldið og í það mættu  Gaui, Grétar, Helgi, Gummi, Palli, Jónas, Eygló, Kata, Anja, Ásta, Ívar, Kamil, Danni, Sandra, Unnur. Drukkið var duglega, hlustað á tónlist og mikið spilað á gíratinn góða :D svo þegar allir voru ornir vel hressir var bara skellt sér í bæinn og auðvitað var farið á Sólon :), þar sem við strákarnir áttum gjörsamlega danskólfið :D

Það var einhver fætingur milli Kamil og einhvers gaurs og Ég og Gaui íttum honum í burtu en ég var víst bara dreginn í burtu þar sem ég var að gerast líklegur í einhverja vilteisu :P það reif bara einhver stelpa í mig og fór að dansa við mig þannig að ég missti fljótt áhugan á gaurnum Haha fulli gaur Ég :D

Ég var greinilega í einhverju bögg stuði ( Ég kenni öllum orkudrykkjunum um ;D ) það voru einhverjir að reyna að dansa við stelpurnar sem strákarnir voru að dansa við og það fór eitthvað í þá þannig að ég kom bara og fór rólega ( Held ég ) í það að íta þeim burt með rassinum hahaha :D og þá ítti einhver útlendingur við mér og já :) Ég ætlaði að borða hann :) hehe fyndið grín ;)

Svo þegar Sólon lokaði þá missti Ég og Gaui okkur að eins og fórum við berserksgang um bæinn :D Kamil var bara rólegur og elti :)  svo vorum við komnir að hlölla þar sem ég fann eitthvað líters ís box sem var fullt af ís og var að bjóða nokkrum upp á ís en enginn vildi þannig að ég lagði það frá mér fyrir utan hlölla svo stuttu seinna sé ég þarna eitt par og hvað haldiði að hafi skéð ? Auðvitað þurfti hann að sparka! í ísboxið sem var með drullu linum ís og auðvitað ringdi ísinn yfir hann og stelpuna Hahaha þau voru alveg fáranlega þakin af ís, skil ekkert í mér að hafa ekki tekið mynd af þeim :D

svo stuttu seinna hittum við Ívar, Jónar, Grétar og Bylgju. ALLIR AÐ TAKA BYLGJU! :D
Svo var bara funndið stóran taxa og allir heim, Gaui byrjaði eitthvað að rónast og fór ég að Fleima hann, leigubílstjórinn sagði mér að þegja, þá sagði ég bara "En ég hef bara ekki eiginleikan til þess" og hélt áfram :D

svo fórum við eitthvað að eins inn til Gaua til að tjasla honum saman og henda honum í rúmið, ég var eitthvað að reyna að spila á gítarinn heima hjá Gaua en það var bara ekkert að ganga svo vel :D, röddin alveg farinn og Ég vel í því haha :D

Síðan var bara farið heim að sofa

Vill þakka öllum þeim sem komu í partyið og sem voru með á djamminu, og strákar, alltaf heiður að djamma með ykkur, þið eruð Bestir! :D

Myndir úr partyinu: http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=12593741&uid=4604697
Jökull Finnbogason
4 athugasemdir